Pælingar - spælingar
Svo verð ég bara að koma þessu frá mér en þetta hefur legið á hjarta mínu ansi lengi og ég er alveg að springa. En þannig er mál með vexti að hvar sem maður lítur þá sér maður veggjakrot eftir þessa skaðræðis unglinga sem kunna sig bara ekki (ég er ekki að segja að ALLIR unglingar gerir þetta, en þeir eru þó nokkuð margir). Þetta sér maður í strætóskýlum, inn í strætisvögnum, á almenningseignum og einstaklingseignum. Og þegar þetta er þvegið af eða málað yfir er þetta komið jafn óðum. Hvað er eiginlega málið!?!? Hvers vegna fær þetta ekki frið? Það er til flott veggjakrot og ljótt veggjakrot, að mínu mati. Ljótt er t.d. þetta sem er að pirra mig. Allt þetta sem er skrifað út um allt. Hvað í andskotanum þýðir t.d. SC?!?! Þetta sé ég skrifað út um allt! Flott veggjakrot getur verið e-ð sem hefur verið gefið leyfi fyrir og er þá til þess að skreyta stóran, auðan vegg og þá eru það oft brillerandi myndir. Það þarf e-ð að gera í þessu. Þetta er alveg fáránlegt.
Vill einhver segja mér hvað er fallegt við þetta? Kannski er það bara ég, kannski skil ég ekki þessa list en ég er alveg handviss um að það eru þá fleiru sömu skoðunar!Og fyrst ég er nú e-ð að tjá mig hérna þá verð ég að benda ykkur á þennan link sem ég fann á www.humor.is og ég mæli eindregið með því að þið skoðið http://humor.is/Link/view/35688 en þarna er ákveðinn einstaklingur sem lenti í einelti og segir sína skoðun og tjáir sig. Einelti er hræðilegur hlutur og ætti ekki að viðgangast og það er ótrúlega er að hann er ekki bara innan um börn og skóla. Einelti getur fundist t.d. á vinnustöðum, félagsstarfsemi og fleiri stöðum. Hvort sem það eru börn eða fullorðnir. Þetta er til en ætti ekki að vera til. Hvers vegna þurfa sumir að lítillækka aðra til að láta sjálfum sér líða betur? Það er bara e-ð sem ég skil ekki.
ÖLL DÝRIN Í SKÓGINUM EIGA AÐ VERA VINIR!
Harpa kveður - góða nótt og eigiði góða ferð inn í draumalandið
Þetta er ekki banani, þetta eru endaþarmsmök
Þarf virkilega að fara að vinna í lottó! Þyrfti þá reyndar fyrst að kaupa miða...
Hey ég er nánast alveg búin að koma mér fyrir á nýja staðnum. Það eins sem vantar er eldhúsborð & stólar. Þannig að ef einhver lumar á því í geymslunni, rassvasanum eða á öðrum stað, endilega láta mig vita.
Fór á laugardaginn með Nínu á Tatto & Skart. Þar var ég andlegur stuðningur á meðan hún fékk sér þetta æðislega tatto á herðablaðið. Ég er að segja það, hann Jón er SNILLDAR tattoverari, hann BTW gerði sporðdrekann minn sem er rosalega flottur. Svo fékk ég þá skyndihugdettu að fá mér gat, fyrst við vorum þarna en mig hefur lengi langað í þetta gat. Fékk mér lokk í brjóskið við eyrnagöngin. Nína var svo góð að halda í höndina á mér enda nálin á stærð við langan fingur. Hún meiddi sig pínu enda með hringi á fingrunum, fyrirgefðu sæta. Þetta var ekki eins vont & ég bjóst við en sársaukinn eftir á er óbærilegur! Er núna voðalega bólgin & finn soldið til. Svo má ég ekki skipta um lokk fyrr en eftir 8 vikur! Þá fer ég til Sessu & hún hjálpar mér að skipta.
Það styttist í páskana sem þýðir að ég fer heim en ég var síðast heima um miðjan júlí síðasta ári. Það mun reyndar verða alveg pakkað núna en ég fer vestur með Ella, Helgu & Gest Mána. Svo eru Hrefna & co komin. Þetta á eftir að verða alveg frábært
Hver vill koma með mér á Octoberfest í Þýskalandi??? Bjór bjór bjór!
Svo er ég búin að vera að reyna að setja inn myndir frá árshátíð leikskóla & djamminu með stelpunum um daginn en
það er e-ð ekki alveg að ganga. Reyni fljótlega aftur þegar ég hef meiri þolinmæði!
Svo hitti ég Binna minn um daginn. Skrítið að búa ekki lengur með honum en við áttum það samt alveg til að vekja hvort annað á ósiðlegum tímum. Helvítis vekjaraklukka! Við fórum á Kaffisetrið og fengum okkur tælenskan mat enda er þetta frábær staður til þess. Sátum heillengi og bara töluðum saman, enda margt að rifja upp. Skelltum okkur svo á Sportbarinn í pool og bjór en staðan varð 2-2
Óvissuferð eftir 11 daga!
Au revoir!
You sexy beast
- Heimabakaðar framandi pítsur á föstudaginn heima hjá Sillu og Herði. Þar voru líka Hrefna & co, Elli bró & co, Ragnar & co, Heba og Linda Hlín. Fullt af krúttum til að knúsast í!
- Síðsti laugardagur - Skemmtilegur félagsskapur, þ.e. Solla, Lilja Dögg og Sandra, pose myndatökur, bjór, pítsa, mikið af hlátri og knúsum, Pravda og sofa Zzzzz!
- Gaurar sem skilja ekki NEI eru böggandi!
- Stundum vilja stelpur bara dansa strákar.
- Fékk að hitta kærustuna hans Ella á helginni og son hennar. Þau eru bæði hreint út sagt frábær. Held meira segja að strákurinn hafi tekið smá ástfóstri við mig, en hann kallaði eftir einum gangi "Halló Harpa mín" bara krútt!
- Ég fékk inn í Háskóla Íslands
finnst það alveg frábært. Er samt soldið stressuð enda finnst manni maður voða lítill e-ð þegar maður fer inn í aðalbygginguna. - Mest notuðu orð gærdagsins - steravöðvi og lítið typpi. People, don´t ask!
- Pabbi er að koma suður á morgun - Jeij!
- Alltaf vinnandi, en brátt koma páskar og þá fer ég loksins vestur á Patró, hef ekki farið þangað síðan í júlí á síðasta ári

- Nennti engan veginn að hafa þetta "eðlilega" færslu, frekar svona í punktum. Svo verð ég að reyna að setja inn myndir fljótlega, er voða léleg e-ð við það.
Au revoir
Einmana lasarus
Ótrúlegt en satt þá náði mín að vakna um 10 á laugardaginn til að fara að pakka niður. Vá ég var svo ekki að geta það en ég varð. Mamma, pabbi og Sigþór voru öll að hjálpa mér að flytja og svo var Öddi svo góður að hjálpa líka til. Hann var samt e-ð ósáttur við að ég væri að fara að flytja á þriðju hæð, ekki gaman að bera dót upp svona marga stiga
Ég fór samt að finna fyrir slappleika á laugardagskvöldið en mætti til vinnu á sunnudaginn, enda voðalega þrjósk. Ég var ekki búin að vera meira en klukkutíma þegar ég varð að fara veik heim. Já svoleiðis er staðan. Ég er veik heima, með hita, er óeðlilega slöpp og finn til í öllum líkamanum ef ég ákveð að standa upp. Ekki gaman
Ég og Gunnar Davíð fórum í billjard í Skeifunni og þar voru spilaðir þrír leikir. Ég vann 2-1
Stórfréttir! Ég fer vestur um páskana en ég hef ekki farið þangað síðan í endi júlí á síðasta ári. Vá er ótrúlega spennt og ég held að við verðum þarna öll systkinin. Bara eins og í gamla daga
Nína var æðisleg, tók mig í litun og plokk síðasta fimmtudag. Alltaf gaman að hitta þig sæta, getum spjallað um allt og ekkert og takk fyrir "bíó" tímann!
Lagið: Trow me away - Korn: Unplugged
Au revoir
Bringuhár eru kynæsandi, í hófi!
Vinna, vinna, vinna, vinna! Já það er það sem hefur á daga mína drifið. Síðasta helgi var frekar löng og ég var mjög þreytt eftir hana. Var að vinna á laugardag frá 10-01 því það var talning eftir að búðinni lokaði. Ég og Nína fengum að telja og skanna saman og það var rosalega gaman. Ég var komin með svo mikinn svefngalsa í restina að ég grét af hlátri! Það var svo fullt af gotterí í boði fyrir starfsfólkið. Kjúklingaréttur, brauðréttir, salöt á kex, nammi, gos, orkudrykkir, snakk og fleira. Svo þurfti ég að mæta til vinnu á sunnudag og ég var ennþá dauð í fótunum. Var með harðsperrur í nokkra daga eftir á. En þetta var stuð og fæ góðan pening fyrir þetta ![]()
Fór aðeins á rúntinn á föstudaginn, en hefði kannski átt að fara fyrr heim að sofa. Það var gaman að slæpast bara og tala saman. Á sunnudaginn eftir vinnu var farið í Háskólabíó á The perfume - Story of a murdera. Hún er ekki leiðinleg en ekki beint skemmtileg, hún er spes og öðruvísi. Mæli alveg með því að fólk sjái hana enda sér maður ekki fyrir hvað gerist og maður er marga daga að melta hana.
Fór í gær og fékk mér aftur lokkinn í tunguna, var búin að sakna hans svo mikið. Það var ekkert vont, alveg eins og mig minnti. Ætlaði líka að fá mér lokka í brjóskið sem er við eyrnagöngin en ætla að gera það á næstu dögum, var ekki alveg að vilja finna til á tveimur stöðum í einu.
En annars er ég á fullu, ásamt skemmtinefnd Fífuborgar, að skipuleggja óvissuferðina okkar og ég held bara að þetta sé komið hjá okkur
þetta á eftir að verða alveg rosalega gaman!
Næsta helgi mun verða rosalega góð!
Au revoir!
Dettandi inn um ólæstar dyr
Á föstudaginn fór ég og keypti alveg þessa frábæru peysu í Hagkaup á aðeins 500 kr. Það er ennþá útsala og ég fann peysu sem er steingrá og nær niður fyrir rass og er rosa góð fyrir kósý. Fór og hitti Lilju Dögg. Stefnan var tekin á vínbúðina og svo á vistina hennar. Þar lá ég hálf dauð upp í rúmi eftir átök vikunnar á meðan hún fór í dress og setti á sig andlit. Leiðin lá svo í Hobbitaholuna þar sem ég gat gert það sama. Bjórinn var góður og góflið og tölvan fengu að smakka. Ekki alveg nógu gott. "Venni Páer" var svo góður að taka rúnt með okkur og skila okkur svo á djamm niður í bæ. Og auðvitað fórum við á Pravda, var einmitt að segja við Nínu að þetta væri eiginlega að verða staðurinn okkar
Á laugardaginn var ekkert voðalega auðvelt að vakna, var þunn og rosalega þreytt. En ég fór á fætur og fór í sturtu enda fóru ég og Lilja á háskóladaginn í háskólabíó. Það var ekkert smá mikið af fólki en ég fékk ýmsar uplýsingar sem er nokkuð gott og ég held barasta að mín sé búin að ákveða námið næstu 4 ár, ef ekkert klikkar. Hittum svo Nínu og fengum okkur djúsý hamborgara og franskar og fórum svo í búðir. Eyddi svo kvöldinu með Ömma. Fengum okkur að borða tælenskan mat og horfðum á Sin City. Þetta var allt saman mjög vandræðalegt og ég veit ekki alveg hvort ég hafi verið tilbúin að hitta hann. En við gátum spjallað og reynt að vera vinir.
Í dag er svo konudagurinn, til hamingju konur! Ég fékk engin blóm
Ég er að pæla að fara í skipt nám í íslensku til BA prófs í Háskóla Íslands. Þá tek ég 60e í íslensku (2 ár) og svo bókmenntafræði í eitt ár. Og svo þarf ég að ná hæstu einkunn til að gera lært kennsluréttindin. Þetta er planið í dag en maður veit aldrei hvað getur gerst, meina, stundum finnst manni e-ð skemmtilegt en getur ekki lært það. En við vonum það besta.
Ég hef verið að detta e-ð niður í þunglyndinu. En ég reyni að gera mitt besta og vera jákvæð og bjartsýn með allt. Taka lyfin, fara í göngutúra, hitta fólk og allt það. Það besta er þegar ég veit að fólk styður mig
Mig langar rosalega vestur á æskuslóðir!
Mig langar líka norður á Dósina til systu & co og eyða með þeim tíma.
Stjarna er flutt að heima en ég varð að gefa hana. Það var alveg rosalega erfitt
Nína, hvenær eigum við að baka pítsu??? Hlakka til talningarinnar með píp tækinu
Fór í bíó um daginn með Hildi Lilju. Við fórum á Pursuit of happiness og þetta er rosalega góð mynd. Ég var farin að tárast um miðja mynd enda fann maður svo til með persónunum. Mæli með því að þið farið að sjá hana!
Jæja, ætla að fara að sofa, þarf að vinna lengi á morgun.
Góða nótt!
Mér er kalt á tánum ég segi það satt
Hósti, hálsbólga, kvef og kuldi eru einkennadi fyrir líðandi daga. Það fór kólnandi veðrið hérna hjá okkur og það eru allir lasnir á leikskólanum. Ég er farin að finna fyrir smá slappleika en ég reyni að gera mitt besta til að stöðva það. Klæða sig vel, fá sér hálstöflur og hvíla sig vel! Já það má alltaf reyna.
Get voða lítið sagt ykkur í fréttum krúttin mín enda er ég alltaf að vinna. Það er ekkert að gerast í mínum ástarmálum og satt best að segja finnst mér það frekar fúlt. Núna er þessi tími sem það er best að hafa einhvern til að kúra hjá. En ég örvænti ekki of mikið og reyni að vona það besta. Þetta gerist þegar þetta gerist og helst þegar maður er ekkert að pæla í svona hlutum. En væri alveg til í kúr af og til, knús jafnvel! Draumamaki í núinu, hvar ertu???
Jæja. ætla að skoða tölvuna aðeins betur og dunda mér!
Au revoir!
Let there be light
Síðasta helgi var rosalega góð. Hún einkenndist af bjór, peningum og athygli! Á föstudaginn var það pítsa og bjór með Lilju Dögg og svo lá leið okkar niður í bæ þar sem við dönsuðum og heilluðum karlþjóðina. Hitti nú e-ð af fólki sem ég hef ekki hitt lengi. Svo var farið snemma heim enda þreytt eftir vikuna. Á laugardaginn varknaði mín með smá hausverk. Ég kom mér frá þeim hugsunum með því að fara út og eyða smá pening. Já ég fór í Cintamani og keypti mér æðislega handprjónaða húfu og svo lá leiðin í kringluna. Keypti mér pils og stígvél á útsölum og svo gallabuxur og bol. Fékk smá samviskubit en það hvarf fljótt enda hef ég ekki verið að eyða mikið í mig undanfarið. Um kvöldið fór ég út með Nínu (en stúlkan var að klára sveinsprófið í snyrtifræði - þú nærð þessu sæta!), Lilju Dögg og Baldrúnu. Við kíktum á Pravda og auddað var mín í pilsin, bolnum og skónum sem ég keypti fyrr um daginn. Þar hittum við svo Steinunni afmælisstelpu, bróðir hennar og Jón. Fengum að fara á VIP svæðið og þar náði ég að móðga einn dreng all svakalega. Ég fór e-ð að spurja hvað hann væri gamall og þegar ég heyrði aldurinn 27 (sem er ekkert svo gamalt) þá sagði ég að það væri orðið stutt í grá hár og hrukkur. Hann varð orðlaus og labbaði út. Kom samt stuttu seinna og talaði aftur við mig. Svo var hann alltaf að spurja stelpurnar hvort hann ætti séns í mig! Það var skondið! Hitti svo Kristján sem ég var með í skóla á Ísó og við lokuðum okkur af út í horni og töluðum saman um gamla tíma. Já finnst vera svo langt síðan ég var á Ísó! Keypti mér aðeins of mikið á barnum enda vorkenndi ég kortinu mínu
Sunnudagur - ÞYNNKA og leti!!!
Var að vinna til 8 í gær og eftir það hitti ég Kristínu mína sem allt í einu birtist í Reykjavíkinni. Ekkert smá gaman að hitta þig
Well... ætla að skríða undir teppi og reyna að gleyma því að ég sé nánast tannlaus og það á svona ungum aldri
Au revoir!
Nýtt ár gengið í garð
Nýársdagur??? Úff vá hvað það var erfitt að vakna! Ég var svo óendanlega þunn og þreytt að mig langaði að grenja. Náði samt að staulast fram á klósett og æla matnum og áfenginu frá kvöldinu á undan. Þá leið mér aðeins betur í maganum og gat sofnað e-ð aftur Zzzz! Ég var á náttfötunum allan daginn og allt kvöldið, fann enga orku í mér eða löngun til að fara að koma mér á lappir. Ó NEI! Ég var löt og þunn og fílaði það!
Sá dagur rann samt upp að ég þurfti að fara aftur suður og lifa í raunveruleikanum. Maður getur greinilega ekki leikið sér alla daga og sofið út eins og maður vill. En ég fór sko ekki ein suður í litlu Hobbitaholuna mína. Hún Stjarna litla kom með mér en það er 8 vikna læða sem ég fékk hjá systu & co. Æðislega sæt og ekkert smá fjörug. Fyndið hvað kettir geta verið miklir kjánar. Hún stóð á rúmendanum en sjónvarpið er þar á móti. Hún sá sig speglast á skjánum og tók sig til og stökk. Það endaði með því að hún skall á skjáinn og datt á gólfið. Verð svo að setja inn myndir við tækifæri og líka myndir frá áramótunum, þessar fáu sem ég tók!
Fór á föstudagskvöldið í heimsókn til Hildi Lilju og Bjössa en dúllurnar mínar voru að setja upp hringa. Til hamingju
Í gær lá ég svo bara í rúminu og var ekkert að meika að fara fram úr. Setti bara Ghost Ship í tækið og horfði á það ásamt Stjörnu. Held hún muni verða tv fíkill??? Svo heyrði ég í Hildi Maríu frænku og Edda og ég stökk fram úr og á 10 mínútum var ég búin að setja í tösku og klæða mig og var á leið á Akranes með þeim. Planið var tjútt á Mörkinni. Alltaf gaman að heimsækja þau. Eva og Steinunn slógust í för með okkur og þetta var gaman. Mikið dansað og sumir kysstust meira en aðrir! Þannig að líðanin í dag - þynnka og þreyta! Takk æðislega fyrir mig, verðum að endurtaka þetta en kannski ekki þynnkuna.
Mér er illt í eyranu mínu
Kvíði þriðjudeginum hevy mikið! Þá er ég að fara í endajaxlatöku og ég er nett hrædd! Tannsérfræðingurinn minn náði að sannfæra mig að það þarf að taka þá, annars eyðileggst allt sem ég hef verið að láta laga. Á ábyggilega eftir að gráta úr mér augun. Vill einhver halda í höndina á mér???
Ég: Er vont að fara í endajaxlatöku?
Kristján: Er það e-ð öðruvísi en venjuleg myndataka?
Ég: Ha?
Haha þetta fólk sem ég vinn með er snilld
Fólk dagsins eru bræður mínir þeir Elli og Sigþór en þeir eiga afmæli í dag. Elli er orðinn 32 ára og Sigþór 13 ára. Til hamingju krúttin mín
Au revoir!
Árinu að ljúka
Í byrjun ársins þá var ég stödd á Sauðárkrók. Þar var ég á lokaári á félagsfræðibraut í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og bjó á meðan á heimavistinni á Króknum, sem BTW var ekkert nema frábær reynsla. Enda soldið erfitt þegar yfir hundrað manns búa saman en alltaf fjör og mjög gaman. Ég reyndi að stund námi af kappi enda vill maður ekki annað þegar þetta er allt að koma hjá manni. Auðvitað var farið á tjútt með vinunum svona inn á milli og þar bar mest á dimmeteringunni okkar en hún var hrikalega skemmtileg og bara einn sem drapst áður en við fórum að vekja kennarana. Allavega lengsta fyllerí sem ég hef farið á! Þegar prófin gengu í garð var ég orðin virkilega stressuð og spennt. Gerði ekkert nema læra og sofa í tvær vikur. Ætlaði mér sko að ná og það gerði ég, ekkert nema áttur og níur og þann 26. maí fékk ég hvíta húfu á kollinn og var svo ánægð að geta gert fjölskyldu mína stolta af mér. Mér tókst þetta!
Ég flutti suður þann 28. maí og byrjaði að vinna á leikskólanum Fífuborg sem er í Grafarvogi. Þar er ég á deild sem heitir Dvergheimar en sú deild er fyrir börn sem eru 4 ára. Bjóst aldrei við að fara að vinna á leikskóla en þetta er rosalega gaman og mjög krefjandi og gefandi. En einnig soldið andlega erfitt þegar þessi kríli eru upp á sitt besta. Þarna vinn ég með frábæru fólki og sem betur fer er þetta ekki stór vinnustaður.
Í sumar fór ég tvisvar vestur á Patreksfjörð. Fyrra skiptið var yfir sjómannadagshelgina en þá var stoppað stutt en ég fékk þó að eyða tíma með fjölskyldunni og hitta vini mína og það er það sem skiptir mestu. Seinna skiptip fór ég í endi júlí en þá var sumarfrí hjá Fífuborg. Þá var ég heima í tvær vikur og það var alveg rosalega gaman. Gerði marg og hitti marga.
Þetta ár leyddi með sér ástarsamband en eins og margt, þá gekk það ekki upp. Þannig að ég mun fara inn í nýtt ár sem einstkalingur á lausu en ég örvænti ekki. Aldrei að vita hvað nýtt ár ber í skauti sér!
Eftir að ég flutti suður þá hef ég búið á þremur stöðum. Fyrst bjó ég í Rimahverfi í tvær vikur. Þaðan flutti ég í Lindarhverfi í Kópavogi og var þar í þrjá mánuði. En núna bý ég á Njálsgötu í yndislegu Hobbitaholunni minni ásamt honum Binna meðleigjanda. Þar er ágætt að vera og stutt í tjútt og aðra menningarlega hluti í Reykjavík.
Árið hafði einnig í för með sér veikindi. Smá líkamleg en maður getur ekki forðast ælupestina, hún nær manni ef hún ætlar sér það. En svo varð líka vart við andleg veikindi hjá mér en ég byrjaði á þunglyndislyfjum í byrjun desember. Ég get voða lítið ert í því nema líta soldið björtum augum á allt og byggja mig upp andlega og líkamlega.
Vil svo koma því á framfæri að þótt ég kvarti, sé dramadrottning og eigi það til að vera soldið spes að þá elska ég vini mína og fjölskyldu
Takk fyrir árið sem er að líða og við hittumst hress og kát á því nýja!
Au revoir!