Aðalvalmynd

Auglýsing

Mestu krummaskuð Íslands

30. nóvember 2006 klukkan 00:18

Rétt eins og titillinn segir, hljóðaði grein í fréttablaðinu sem kom út á mánudaginn síðasta, og ég get sagt það bara strax að ég hef aldrei verið jafn móðguð eða hneyksluð á einni blaðagrein. Mér finnst það hreint og beint hneyksli að einhverjum skuli hafa dottið þessi hugmynd í hug og virkilega prentað hana frammi fyrir landsþjóð.

Þarna er sigurvegarinn Reyðarfjörður og svo bæjir sem koma á eftir honum eru: Bolungarvík, Eyrarbakki, Garðabær, Grenivík, Höfn í Hornafirði, Keflavík, Raufarhöfn, Vestmannaeyjar, Bíldudalur, Blönduós, Búðardalur, Garður, Grundarfjörður, Hella, Hnífsdalur, Ólafsvík, Patreksfjörður, Reykhólar á Barðaströnd, Siglufjörður, Víðihlíð og Vogar á Vatnsleysuströnd.

Sums staðar er gert út á það hve fá hús séu á hverjum stað og fái á ferli í hverjum bæ. Að sumir séu "wannabe" stórborg og aðrir svo svakalega afskekktir að þeir hafa sér mállýsku og voru kallaðir hillbillí (vil bara benda á það að á Akureyri er næstum sér mállýska og ég sé ekkert athugavert við það, en ekki eru þeir e-ð spes afskekktir). Plebbalegt pleis - afhverju er einhver einn staður plebbalegri en annar? Hvað varð um að nota bara íslenskuna okkar en ekki e-ð slangur? Á einum stað er nefnt að þar fáist ekki hamborgarar og hvað þá pylsur. Þar vil ég bara nefna að þá hefur sá aðili sem skrifaði þetta ekki skoðað bæinn neitt sérstaklega vel. Á þessum stað er góður veitingastaður á aðalgötunni og ég veit ekki betur en þar fáist góður hamborgari og annar frábær matur. Á einum stað er sagt að þar sé ekkert til að stoppa fyrir en það er mjög erfitt að dæma bók eftir kápunni. Ef þú þekkir e-ð til á staðnum (sem þetta fólk gerir greinilega ekki) að þá er alltaf e-ð að gera. Á einum stað er sett út á fatnað fólks. Að það hafi gengið í einhverju ákveðnu og þegar það kom í tísku að þá hafi það breytt til og farið að ganga í einhverju öðru. Hvað helvítis máli skiptir það? Þurfa allir að vera eins og fara eftir því sem nokkrar manneskjur sem um hvað sé í "tísku"? Hvernig fer þá fyrir okkur? Manneskjan er að verða komin á það stig að við hugsum ekki sjálf eða yfir höfuð gerum e-ð sjálf nema við sjáum þetta "hipp og kúl" manneskju sem "ræður" gera það líka. Á einum stað er sett út á partý sem skrifendur fóru í en þar fannst þeim greinilega e-ð athugavert við það að þar væri hlustað á Metallicu en ekki e-ð annað. Hvað er málið með allri þessari fjölbreytni á tónlist í dag ef allir eiga að hlusta á það sama? Það er til svona mikið magn og fjölbreytni af tónlist svo allir hafa e-ð sem hæfa sér.

Og það er fleira í þessari grein að lesa og setja út á og ég mæli með því ef fólk kemst í fréttablaðið síðan á mánudaginn að lesa greinina og segja hérna hvað þeim finnst. Í hreinskilni sagt, getur landsbyggðin ekki verið nógu "kúl" nema vera alveg eins og tuttugu cappucino sötrandi miðbæjarrottur. En það kemur fram í greininni að það hafi verið fengnir tuttugu einstaklingar (cappocino sötraqndi miðbæjarrrottur) til að segja álit sitt. Þesstir tuttugu álitsgjafar voru:
-Björg Sveinbjörgsdóttir (Donna Mess)
-Búi Bendtsen (útvarpsmaður),
-Ceres 4 (pönkari),
-Dóri DND (rappari), 
-Elís Pétursson (Jeff Who?),
-Elísabet Ólafsdóttir (Beta Rokk),
-Erpur Eyvindsson (rappari),
-Ester Ásgeirsdóttir (Singapore Sling),
-Frosti Logason (Mínus),
-Helgar Óskarsdóttir (myndlistarkona),
-Hugleikur Dagsson (teiknari),
-Jón Atli Helgason (Hairdoctor),
-Katrín Atladóttir (katrin.is),
-Kormákur Geirharðsson (kaupmaður),
-Margrét Hugrún Gústavsdóttir (blaðamaður),
-María Reyndal (leikstjóri),
-Óskar Jónasson (leikstjóri),
-Páll Óskar Hjálmtýrsson,
-Rögnvaldur Raögnvaldsson (Hvanndalsbróðir),
-Skjöldur Eyfjörð (verslunarmaður).
 
Auðvitað verðum við að virða þeirra skoðun en mér finnst það samt ekki í lagi að taka fyrir nokkra bæji og algjörlega rakka þá niður til helvítis og segja að þeir séu ekkert nema ömurlegir og viðbjóðslegir!!!

Endilega komið með ykkar skoðun á þessu!

Au revoir!

góður punktur....hef ekki séð þessa grein en það sem ég las hjá þér lofar ekki góðu..:)
#1
30. nóvember 2006 klukkan 01:17
hehe æi ég held þú þurfir ekki að hafa svona miklar áhyggjur af þessu... ég las reyndar ekki greinina en finnst líklegra að þetta sé gert í léttu gríni og að fólk eigi bara að hafa gaman af þessu, bæði borgarbúar og landsbygðarfólk :)
#2
30. nóvember 2006 klukkan 01:32
 
Einhver sem þekkir til
hahaha, Elsku vinkona, patreksfjörður er Krummaskuð og það vitum við sem höfum búið þar síðustu 32 ár af 40, Staðurinn hefur staðnað og jafnvel farið mikið aftur síðustu misseri og þetta er ekkert í óvild sagt, þetta eru einfaldlega staðreyndir.
#3
30. nóvember 2006 klukkan 02:03
 
Sóley
sumir eru bara eins og þeir eru :)
#4
30. nóvember 2006 klukkan 06:03
 
Harpa
Ég er fædd og uppalin á Patreksfirði og mér finnst þetta bara ágætis bær. Ég myndi allavega ekki segja hann pínlegann.

Og ef þú sú sem þekkir til vilt segja álit þitt endilega segðu þá til nafns, annað er bara barnalegt
#5
30. nóvember 2006 klukkan 15:14
Hey kannski er hún bara feimin greyið... skemmtileg grein annars!
#6
30. nóvember 2006 klukkan 17:19
Þetta er bara rugl ... vita ekki um hvað þeir eru að tala um ...

Skemmtileg grein hjá þér ... tók ekki eftir þessu. Asnalegt að þetta hafi verið prentað, er alls ekki sammála þessu. Algjör þvæla. Eftir að hafa búið hér í Reykjavík að þá gæti ég ekki verið frá því að borgin sé leiðinlegri heldur en þessir bæir út á landi ... ég er að deyja mig langar svo að flytja héðan úr borginni og aftur upp í sveitina. Mér finnst að maður ætti bara að fara til Reykjavíkur af og til en ekki búa í henni, finnst hún óhrein og ógeðsleg (svo þarf maður líka að fara miklu varlegar hér, læsa bílnum og húsinu...sem að maður þarf ekki upp í sveit...)

En fólk hefur sínar skoðanir ....
#7
30. nóvember 2006 klukkan 17:26
 
systa
Það er gott að búa í krummaskuðum he he he. Segir ein sem þekkir til. Heyri vonandi í þér sem fyrst.
#8
01. desember 2006 klukkan 03:52
hahah skagaströnd var ekki nefnd.. og hey.. akureyríska er ekki grín.. hún smitast :S
#9
01. desember 2006 klukkan 05:09
 
Þórður Rafn..
Úfff fegin er ég að þetta fólk er með þessar skoðanir á landsbyggðinni, ekki vill ég að þetta lið flytji útá land. Allavegana ekki á dósina sem er rólegur og þægilegur krummaskurður sem ég vill eiga mína rólegu fjölskyldustundir og vera laus við þetta líka leiðinlega lið á þessum lista. Er ég fæddur og uppalinn á dósinni (Blönduós fyrir þá sem ekki fatta) og bjó þar mína grunnskóla æfi, flutti svo í borgina og bjó þar allt of lengi og er kominn aftur norður og á mér núna líf, en virði ég þá sem vilja þetta stórborgarlíf (ef líf má kallast).
#10
01. desember 2006 klukkan 18:23
Það fyndnasta við þessa grein er að Beta Rokk bjó einu sinni á Bíldudal, skyldi hún hafa sagt þetta með hamborgarann og pulsuna?

Mér finnst þetta fréttablaðinu til skammar að hafa birt þetta. Og veit ég að það voru ekki ófáir Bílddælingar sem hringdu þangað eða sendu tölvupóst og fékk ritstjórninn og blaðamaðurinn sem skrifaði þetta skammir.

En ég er nokkuð viss um það að meirihluti þessa fólks hefur aldrei farið út fyrir höfuðborgina og þekkir ekkert annað!!

En hlakka til að sjá þig 8.des!! :D
#11
01. desember 2006 klukkan 19:30
þetta sýnir bara hvaða álit þetta lið hefur á ýmsum stöðum úti á landi og meina það á kanski ekki góðar minningar þaðan.. og bara hvað það er upptekið að lífinu í borginni og getur ekki án þess verið!!!
held þetta hafi nú ekkert átt að vera neitt illa meint, samt bara asnalega orðað e-n vegin og komst kanski vitlaust til skila með því að segja mestu krummaskuðin...
æji ég allavega tók þessu ekkert of alvarlega, fannst þetta bara vera ein af þessum rugl fréttum og hálfgert djók..

en er alveg sammála Þórði í því að maður er þá allavega laus við þetta snobbpakk á meðan! sem mér persónulega finnst ekkert verra!!
#12
01. desember 2006 klukkan 21:59
 
Sjonni
Djúpivogur og Breiðdalsvík þurfa að koma ofar á listann...
#13
11. desember 2006 klukkan 01:38

Skrifa athugasemd